9.11.2009 | 18:00
Stóra skuldabréfamálið í Glitni
Hvað er eignlega að gerast hjá Skilanefnd Glitnis.
Ég hélt að Árni væri fullfær um að staulast í gegnum bókhaldið. Þetta hefur sennilega verið eitthvað grín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2007 | 15:13
Eru galnir menn sem stjórna sumum þjóðum?
Hvort sem nú er, þá man ég að það vantaði ekkert á að Ísrealasher hafi náð að sprengja í loft upp nánast það sem hann vildi og dreifa klasasprengum yfir íbúðabyggð sem er almennt fordæmt hjá siðuðum þjóðum. Þeir sáu sig knúna til að eyðileggja samgöngukerfi og aðra innviði samfélagsins sem þeir réðust á. Olíutanka sprengdu þeir í loft upp og olína rann út í sjó þar sem er vinsæl baðströnd og höfn fyrir smábáta.
Ég get ekki betur séð en þeim hafi vel tekist til í eyðileggingu og ekki sæmandi að gagnrýna herinn fyrir að hafa verið máttlítill á því sviði. Það tókst að sprengja Líbanon nokkra áratugi aftur í tímann eins gáfulegt og það nú er.
Litli Bush forseti vinarþjóðar okkar og þjóðar sem við mörg hver lítum upp til hefur með ráðum og dáð stutt allt það brjálæði sem Ísraelum hefur hugkvæmst.
Er það ekki augljóst að háttarlega Ísraela er orsök þessa hræðilega ástands sem er viðvarandi við botn Miðjarðarhafsins? Er engin von til þess að vestrænar þjóðir geti beitt sér til að hemja hernaðarveldið Ísrael?
Hvernig í ósköpunum stendur á því að Bush er ekki búinn að gera innrás á Kúpu? Hvað hefur haldið aftur af honum?
Kveðja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2007 | 00:43
Er körfuboltinn í tilvistarkreppu?
Nú er úrslitakeppni körfuboltans í fullum gangi og ljóst hvaða lið leika í fjögurra liða úrslitum. Ruslið er dottið út. Eftir standa aðeins liðin sem unnu heimavinnuna sína. Heimavinnan fólst í því að velja réttu útlendinga.
Aðalleikarinn er svartur Kani. Það er aðeins heimilt að hafa einn Kana, en með smá útsjónarsemi geta sum lið haft tvo. Svo bætast við tveir næstum-aðalleikarar og þeir eru yfirleitt frá gömlu Júgóslavíu, en einstaka koma frá N-Evrópu. Hvert lið hefur síðan einn til tvo Íslenska leikmenn sem eru taldir aðal-aukaleikarar. Afgangurinn af hópnum fimm leikmenn sem allir eru íslenskir hafa það hlutverk að sitja á varamannabekknum og hvetja félaga sína til dáða og að sjálfsögðu eru þeir hluti af liðsheildinni þ.e. hópnum sem hópast saman rétt áður en dómarinn setur leikinn af stað. Þeir öskra allir í einum kór eitthvað eitt orð sem getur verið nafnið á félaginu þeirra eða "berrrrrrjumst". Þeir koma stundum inn á völlinn þegar annað lið er komið með svo mikla forystu að úrslit leiksins eru ráðin. En af einhverjum ástæðum er ekki talið æskilegt að aðalleikarinn og helstu aukaleikarar sjái um þann leikþátt. En þetta gerist tvisvar til þrisvar á vetri. Þessi kafli í leikritinu heitir "aukaleikararnir öðlast keppnisreynslu".
Liðið er því byggt þannig upp.
Einn aðal-leikmaður.
Tveir næstum-aðalleikmenn.
Tveir til þrír næstum-aukaleikmenn
Aukaleikmenn (var í gamla daga kallað rest og rusl).
Hvert lið leggur mikið upp úr því að hafa sitt lið svolítið NBA-like. Þjálfarar og aðstoðarmenn eru að jafnaði í jakkafötum með bindi eins og þeir séu að fara í brúðkaup. Þetta atriði er tekið beint úr NBA-leikritinu. Kynnig á leikmönnu er ekki áhorfendum bjóðandi nema það sé NBA-like stæll á henni með tilheyrandi ljósagangi. Þeir sem ekki geta boðið upp á þetta telja sig ekki hafa náð fullum þroska í að halda heimaleiki og skammast sín fyrir vikið. Þetta getur stundum virst svolítið hjákátlegt þegar leikmenn með öllum aukaleikurum eru fleiri en áhorfendur. Þvi miður eru íslensku keppnishúsin það lítil að ekki er hægt að skjóta upp flugeldum innanhúss eins og í NBA.
Það væri eflaust hægt að halda þessu handriti óbreyttu ef ekki væri fyrir þá staðreynd að það virðist sem einhverjir hafi gefist upp á þessu og leikritið er að verða svolítið leiðinlegt. Áhorfendum fjölgar ekki, það virðist ekki vera að þetta höfði til nema örfárra. Þessi uppsetning er dýr og ég hygg að sumir leikstjórnendurnir (stjórnarmenn deildanna) séu margir orðnir þreyttir á þessu leikriti. Það þarf að útvega húsnæði fyrir alla þessa útlendinga, bíla og innbú. Síðast en ekki síst þarf sérkunnáttu til að gera þá löglega leikmenn hérlendist þar sem það þarf að fylla út endlaust af pappírum og sumt af því sem þarf til að uppfylla kröfur er nánast ómögulegt að nálgast. Síðan þarf fullt af peningum til að láta sjóið ganga.
Það sem varð til þess að ég setti þessar hugsanir á rafrænt form er að ég horfði á leik Keflavíkur og Snæfells þar sem Snæfell sópaði Keflavík léttilega út af sviðinu. Þetta stórveldi í körfuknattleik hefur verið óheppið með útlendinga í vetur þrátt fyrir að þeir hafi sennilega bestu aukaleikarana og sumir þeirra gætu leikið hlutverk næstum-aðalleikara. Það er bara svo langt síðan þeir gerðu það að þeir eru búnir að gleyma handritinu. Þeir hafa ekki unnið heimavinnuna sína. Þeir sem búa í næstu götu við útlönd og hafa gert næstum allt NBA-like. Að auki voru sárafáir áhorfendur sem er undarlegt þar sem Keflavík er nánst Mekka körfuboltans á Íslandi.
Nú eru nánast allir íslenskir leikmenn í hlutverkum aukaleikara og hafa það helsta hlutverk að safnast saman með hinum og öskra tilkomumikið "berrrrrrrjumst". Það væri verðugt verkefni að öll félögin tækju sig saman og tefldu fram íslenskum leikmönnum í aðalhlutverkum. Ef það gerist ekki þá eignumst við aldrei aftur neina leikmenn eins og Val Ingimundarson eða Teit Örlygsson.
Hverfum aðeins til baka i tíma og reynum að gera þetta svolítið íslenskt. Íslenskur körfubolti þarf ekki að vera svona NBA-like.
Kv JÞ
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 16:54
Ég þarf að prófa þetta.
Nú er komið að mér.
Ég hef í gegnum tíðina ekki haft neina sérstaka þörf á að tjá mig þannig að það birtist opinberlega. En það er ljóst að blogg er opinber birting á skoðun og því þörf á að vanda málfarið og reyna að vera með eins lítið af stafsetningavillum og ég er maður til. Ég skorðaði aldrei hátt í stafsetningu í skóla frekar en öðrum námsgreinum.
Það er ekki ætlunin að verða landsþekktur bloggari en þó mun ég kynna þetta fyrir vinum og vandamönnum.
Ég er einn af þeim sem er með einu réttu skoðunina á málefnum dagsins. En hef ekki vílað fyrir mér að hafa eina skoðun í dag og svo aðra á morgun. Ég er ekkert sérlega stefnufastur og þaðan af síður samkvæmur sjálfum mér í skoðunum. Hef þó haldið mig við að kjósa svona að mestu einn flokk en hef þó gert undantekningu. Ég hef boðað það að ég muni aldrei kjósa Framsóknarflokkinn, en mér lýst vel á Jón Sigurðsson og ef til vill endar það með því að ég kjósi hann. Ætli þetta sé ekki síðastu kosningarnar sem Framsóknarflokkurinn bíður fram.
Það skiptir svo sem ekki miklu mál hvað maður kýs. Þegar á hólminn er komið þurfa allir stjórnmálamenn að glíma við sömu vandamálin og ég held að allir munu reyna sitt besta til að bæta hag landsmanna og það sé aðeins stigsmunur á mönnum eftir flokkum, ekki eðlismunur. Helst að ég hafi ekki trú á ungum og afspyrnuefnilegum konum sem boða kynjakvóta á öllum sviðum þjóðlífsins. Í gegnum tíðina hafa svona baráttujaxlar komist í sviðsljósið en þær hafa tilhneiginu til að hverfa snögglega. Ég held að þetta tengist hinni hliðinni á þunglyndi þ.e. maníunni, það eru margir ansi kröftugir þegar þeir eru í manísku ástandi.
Eins og ég sagði hér að ofan hef ég hina einu sönnu skoðun á mönnum og málefnum og tel það ekki eftir mér að hafa sérfræðiálit á nánast öllu. Ég er góður spámaður, sérstaklega ef það á við það liðna en á erfiðra með að spá í framtíðina.
Ég hef mikinn áhuga á íþróttum og væri sjálfur nokkuð góður íþróttamaður ef ég gæti losnað við nokkuð mikið af aukakílóum.
Fyrsta skoðun mín sem ég birti opinberlega. (og enginn les, ég mun þó hringja í nokkra vini mína og láta þá lesa þessa visku)
Er ekki kominn tími til að flytja nokkrar opinberar stofnanir úr miðbænum og á staði þar sem hægt er að leggja bílum í nágrenni þeirra. Tryggingarstofnun, Tollstjórinn, RSK, Lögreglustöðin og fleiri stofnanir eru afar illa staðsettar og að auki í gömlu og hálfónýtu húsnæði. Væri ekki viturlegt að færa þessar stofnanir austar í borginni þar sem aðkoma er þokkaleg, byggja þar almennilegt stjórnsýsluhverfi. Þetta hverfi gæti verið austan Elliðaár.
kv jþ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 15:46
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)