Færsluflokkur: Bloggar
28.8.2010 | 11:30
Viðtalið við Sigurð Einarsson.
Mér finnst Sigurður Einarsson flottur gaur og ánægjulegt að hann svarar fyrir sig. Ég sé ekki betur en að viðtalið við Sigurð sé ágætt innlegg í umræðuna, en það er ótrúlegt að sjá viðbrögðin.
Snillingarnir Egill og Agnes vita varla hverning þau eiga að bregðast við þessu. Það er eins og þetta hafi komið þeim á óvart því þau vita að fyrrverandi bankamenn á Íslandi eru réttlausir eins og Sigurður bendir á. Einhverjir telja að þetta sé óþokkabragð af hálfu JAJ að leyfa birtingu á þessari grein.
Eftirfarandi er tekið úr frétt á Eyjunni og er að mínu mati óborganlegt.
"Beðið er viðbragða Pressupennanna Bubba Morthens og Ólafs Arnarsonar, en þeir hafa verið velviljaðir útrásarvíkingunum í skrifum sínum."
Ég bíð titrandi af spenningi hvað Bubbi mun skrifa, óþokkinn sá. Hann hefur verið velviljaður útrásarvíkingum.
Ekki er öll vitleysan eins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2010 | 15:40
Ofboðslega er þetta Biskupsmál leiðinlegt.
Fyrir 15 árum ásaka nokkar konum þáverandi Biskup um misnotkun. Nú er þetta mál tekið upp að nýju og biskupsdóttir kemur fram og segir að karl faðir hennar hafi misnotað hana. Þetta mál er keyrt áfram í fjölmiðlum og að sjálfsögðu dúkkar upp fólk sem þarf að baða sig í sviðljósinu. Ef ekki með góðum málstað, þá með illum.
Núverandi Biskup er í vandræðum og taldi að hægt væri að leysa málið með því að vísa til þess að öllum þurfum við að standa skil gerða okkar fyrir Skaparanum. Misjafnlega leiðinlegt fólk er að tjá sig um þetta í öllum þeim fjölmiðlum sem hugsast getur. Ráðþrota Biskupinn skipar síðan sannleiksnefnd sem skila einhverju áliti eftir tvö ár og þá byrja þessi leiðindi aftur.
Suður í Róm situr gamall karl í kjól og væntanlega í engum nærbuxum. Í kringum hann hefur hann hirð af hommum sem gæta hans, því væntanlega er hann fulltrúi Guðs á jörðu. Gamli maðurinn er leiðtogi kaþólsku kirkjunnar sem enn þann dag í dag fordæmir notkun smokks. Hjörðin hans er fólk sem er gift Guði og má því ekki hafa kynferðislegt samband við nokkurn mann. Karlmenn í þessum söfnuði meiga ekki finna skítalykt þá virðast þeir allir lifna við og eru allmörg dæmi um kynferðislega misnotkun á öllu því sem hreyfist í kringum þá.
Mér finnst það óskiljanlegt að á árinu 2010 skuli þessi stofnun Kirkjan ennþá vera til í þeirri mynd sem hún er í. Stofnun sem gerir ekkert gagn, starfsmenn hennar hafa menntað sig í þúsund ára gömlum fræðum. Hvaða tilgangi þjónar þessi söfnuður. Skíra, ferma, gifta og jarða. Þurfum við einhverja Preláta til að sjá um þetta fyrir okkur. Er ekki hægt að finna skemmtilegri umgjörð um þessar athafnir?
Er það ekki óendanlega vitlaust að halda úti þessari arfavitlausu starfsemi sem Kirkjan stendur fyrir.
Aðstoðaprestur, Prestur, Vigslubiskup, Biskup og fleira og fleira. Þetta er nú meira bullið. Í þokkabót kostar þetta samfélagið stórfé.
Getum við ekki losað okkur við þetta pakk?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.7.2010 | 15:11
Knattspyrna og kvenna(hvað)
Síðustu vikur hef ég horft á hvern knattspyrnuleikinn á fætur öðrum. HM byrjaði heldur dauflega en gæði leikjanna hafa batnað eftir því sem líður á keppnina. Síðan er hægt að fylgjast með útsendingum og umfjöllun á stórskemmtilegum leikjum í Pepsídeildinni. Sjónvarpsstöðvarnar eru síðan með þætti um knattspyrnu þar sem hver snillingurinn á fætur öðrum tjáir sig um leikina. Þetta er algjör veisla fyrir áhugamenn um knattspyrnu.
Inn á milli koma svo leikir í kvennaknattspyrnu. Ég verð eiginlega dapur þegar ég sé frá þessum leikjum. Ísland á ágætis landslið í kvennaknattspyrnu sem hefur náð ágætum árangri og hefur meðal annars komist i lokakeppni Evrópumeistaramótsins. Nú er landsliðið að keppa um að komast í lokakeppni HM. Það eru sex lið í riðlinum en aðeins tvö sem hafa einhverja getu, Ísland og Frakkland. Ég horfði á leik Íslands og Írlands fyrir nokkrum vikum. Ísland sigraði leikinn með tveimur eða þremur mörku. Það verður að segjast eins og er að getan var ekki mikil hjá liðunum en þó sorglega lítil hjá írsku stúlkunum. Sú sem var þeirra frískust var nú frekar feitlagin og sennilega nálægt 200 pundum. Það er einkanndi fyrir leikina í þessum riðli er að Ísland og Frakkland eru einu liðin sem eitthvað geta, hin geta ekki neitt. Til hvers er verið að flytja þessi lið á milli landa til að leika knattspyrnu? Það er mér fyrirmunað að skilja.
RÚV reynir að gera kvennaknattspyrnu nokkur skil og reglulega fáum við að sjá brot frá leikjum í efstu deild kvenna. Stundum er reglulega sorglegt að horfa upp á hvað liðin eru léleg og þá sérstaklega markverðirnir. Raunar eru tilþrifin stundum slík að það er grátbrostlegt að horfa á þetta. Á sama hátt og mér finnst óskiljanlegt að verið sé að flytja sum landslið á milli landa til að leika eitthvað sem líkist knattspyrnu þá er á sama hátt óskiljanlegt að það sé verið að flytja sum íslensk félög á milli landshluta til að leika knattspyrnu. Alveg óskiljanlegt.
Þróunin hér hefur verið sú að allar bestu stúlkurnar fara í tvö lið og frammistaða þeirra liða er venjulega með áægtum. Síðan bætast við ca tvö lið sem eru ágæt en afgangurinn er bara rest og rusl sem eru ekki boðleg til keppni. Til að bæta stöðuna eru fengnar stúlkur erlendis frá til þess að bæta knattspyrnugetuna eitthvað. En það er auðvitað alltaf fyrirsjáanlegt hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari hvaða lið verður í öðru sæti og hvaða lið falla.
Nú er það ekki svo að ég hafi neina fordóma fyrir kvennaíþróttum t.d. finnst mér kvennahandbolti öllu skemmtilegri íþrótt en karlahandbolti þar sem kvenfólkið reynir að beita tækni og kænsku í sínum leik á meðan karlarnir beita ógnarkröfum svo oft líkist það fremur slagsmálum en boltaleik. En þegar litið er til knattspyrnunar er ákaflega lítið sameiginlegt með karla- og kvennaknattspyrnu nema hvað leikið er eftir sömu leikreglum. Á sama tíma eru gerðar kröfur til þess að aðbúnaður sé sá sami fyrir karla og konur í knattspyrnu og er sú krafa væntanlega byggð á jafnrétti kynjanna. Mér finnst það vera ósanngjörn krafa. Mér finnst ekkert að því að konur og stúlkur leiki knattspyrnu sér til ánægju en það er frekar tilgangslaust að vera með mikið tilstand í kringum þá iðju og ástæðulaust að vera að flyta þessar stúlkur á milli landshluta að landa, enda hefur enginn áhuga á þessari iðju þeirra nema þær sjálfar og ef til vill foreldrar þeirra.
Það væri að mínu viti skynsamlegra að láta konur keppa í sjö-manna bolta. Þar eru mörkin minni og því líklegra að markverðirnir nái upp í slá á markinu og völlurinn er helmingi minni en venjulegur völlur. Þannig aðstæður tel ég að henti betur fyrir kvennaknattspyrnu og ekki útilokað að hægt væri að þróa þetta þannig að almenningur fengi áhuga á þessari iðju. Og að sjálfsögðu á að vera lágmarkskrafa að það sé kvenfólk sem sé í lykilhlutverkum í stjórnun á leikum og framkvæmd þeirra.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2010 | 22:06
Frsta bloggfærslan mín
Ég hef í gegnum tíðina ekki haft neina sérstaka þörf á að tjá mig þannig að það birtist opinberlega. En það er ljóst að blogg er opinber birting á skoðun og því þörf á að vanda málfarið og reyna að vera með eins lítið af stafsetningavillum og ég er maður til. Ég skorðaði aldrei hátt í stafsetningu í skóla frekar en öðrum námsgreinum.
Það er ekki ætlunin að verða landsþekktur bloggari en þó mun ég kynna þetta fyrir vinum og vandamönnum.
Ég er einn af þeim sem er með einu réttu skoðunina á málefnum dagsins. En hef ekki vílað fyrir mér að hafa eina skoðun í dag og svo aðra á morgun. Ég er ekkert sérlega stefnufastur og þaðan af síður samkvæmur sjálfum mér í skoðunum. Hef þó haldið mig við að kjósa svona að mestu einn flokk en hef þó gert undantekningu. Ég hef boðað það að ég muni aldrei kjósa Framsóknarflokkinn, en mér lýst vel á Jón Sigurðsson og ef til vill endar það með því að ég kjósi hann. Ætli þetta sé ekki síðastu kosningarnar sem Framsóknarflokkurinn bíður fram.
Það skiptir svo sem ekki miklu mál hvað maður kýs. Þegar á hólminn er komið þurfa allir stjórnmálamenn að glíma við sömu vandamálin og ég held að allir munu reyna sitt besta til að bæta hag landsmanna og það sé aðeins stigsmunur á mönnum eftir flokkum, ekki eðlismunur. Helst að ég hafi ekki trú á ungum og afspyrnuefnilegum konum sem boða kynjakvóta á öllum sviðum þjóðlífsins. Í gegnum tíðina hafa svona baráttujaxlar komist í sviðsljósið en þær hafa tilhneiginu til að hverfa snögglega. Ég held að þetta tengist hinni hliðinni á þunglyndi þ.e. maníunni, það eru margir ansi kröftugir þegar þeir eru í manísku ástandi.
Eins og ég sagði hér að ofan hef ég hina einu sönnu skoðun á mönnum og málefnum og tel það ekki eftir mér að hafa sérfræðiálit á nánast öllu. Ég er góður spámaður, sérstaklega ef það á við það liðna en á erfiðra með að spá í framtíðina.
Ég hef mikinn áhuga á íþróttum og væri sjálfur nokkuð góður íþróttamaður ef ég gæti losnað við nokkuð mikið af aukakílóum.
Fyrsta skoðun mín sem ég birti opinberlega. (og enginn les, ég mun þó hringja í nokkra vini mína og láta þá lesa þessa visku)
Er ekki kominn tími til að flytja nokkrar opinberar stofnanir úr miðbænum og á staði þar sem hægt er að leggja bílum í nágrenni þeirra. Tryggingarstofnun, Tollstjórinn, RSK, Lögreglustöðin og fleiri stofnanir eru afar illa staðsettar og að auki í gömlu og hálfónýtu húsnæði. Væri ekki viturlegt að færa þessar stofnanir austar í borginni þar sem aðkoma er þokkaleg, byggja þar almennilegt stjórnsýsluhverfi. Þetta hverfi gæti verið austan Elliðaár.
kv jþ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2010 | 14:25
Er Jóhanna og ríkistjórnin galin?
Jóhanna var að tilkynna að ríkisstjórnin ætlaði ekki að gera neinar ráðstafanir vegna galins dóms Hæstaréttar. Segir hún efnahagsleg áhrif vegna dómsins enn óljós.
Hvað er að þessu liði? Það þarf engan sérfræðing til að sjá að niðurstaðan af þessum dómi er grafalvarleg og getur auðveldlega riðið fjármálakerfinu og samfélginu að fullu.
Það er einnig nauðsynlegt að setja dómara Hæstarrétta í endurhæfingu. Hæstiréttur er skipaður öldungum sem eflaust kunna lögin utan að en átta sig ekki á að það gengur ekki að þeir séu bókstafstrúarfólk. Öldungarnir í hæstarétti verða að skynja samfélagið.
Kv
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.6.2010 | 19:35
Pol Pot og íslenska ríkisstjórnin (1)
Eru ráðgjafar ríkistjórnarinnar í andlegu sambandi við Pol Pot.
Tekið af Wikipedia
------------------------------
Saloth Sar, betur þekktur sem Pol Pot, var fæddur 19. maí 1928 og dó 15. apríl 1998. Hann var leiðtogi Rauðu khmeranna í Kambódíu frá 1963 til 1979 og er þekktastur fyrir dauða óhemjumargs fólks í stjórnartíð sinni, sem var frá 1975 til 1979. Rauðu khmerarnir reyndu að framfylgja sýn sinni um eins konar samyrkjuvæðingu, en meðal þess sem hún átti að fela í sér var að borgarbúar flyttu út í sveitir og ynnu þar við landbúnað eða í betrunarvinnu. Þeir töldu sig geta byrjað siðmenninguna upp á nýtt og tóku því upp tímatal sem átti að hefjast með valdatíð þeirra. Sú valdatíð var ekki löng, en því mannskæðari. Þrælkunarvinna, vannæring, hrun í heilbrigðiskerfinu og beinar aftökur kostuðu á bilinu 750.000 - 1.700.000 manns lífið (sumir segja á bilinu 300.000 til 3.000.000) -- í landi sem hafði 14 milljónir íbúa árið 2006. Meðal þeirra sem voru ofsóttir voru menntamenn og aðrir borgaralegir óvinir, sem taldir voru hættulegir og andsnúnir umbreytingunum.
Mér sýnist að íslenska ríkistjórnin eigi ýmislegt sameiginleg með Pol Pot. A.m.k að reyna að leggja allt í rúst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2010 | 11:05
Pönkast á fréttum
Það er öllum ljóst að blaðaútgáfa er erfiður bisness og því þurfa menn að sýna ráðdeild og útsjónarsemi. Fréttir gærdagsins eru venljulega lítil söluvara en á DV eru greinilega útsjónarsamir starfsmenn sem kunna að endurnýta fréttir. Hrunið er DV eilíf uppspretta uppsláttarfrétta og þar á bæ hafa menn náð þeirri færni að ná að jafnaði þremur forsíðum með stríðsfréttaletri þar sem fjallað er um sömu hrun-fréttina. Á DV er það sennilega kallað að pönksta þrisvar sinnum á sömu fréttinni.
Aðeins einn fjölmiðill, ef fjölmiðil skal kalla, gerir betur en DV. Það er Fuglahvíslið á AMX sem endurtekur sömu níðgreinarnar aftur og aftur og aftur. Endalaust skal pönkast á Agli Helgasyni, Þorvaldi Gylfasyni og Ólafi Arnarssyni. Það má alveg pönkast á þeim mín vegna en þetta verður svolítið þreytandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2010 | 10:31
Frábært fótboltasumar
Það er ánægjulegt hvað sjónvarpsstöðvarnar gera íþróttum góð skil. Báðar stöðvar eru með frábæra þætti um HM og ekki er þættirnir um íslensku knattspyrnuna síður frábærir.
Eftir að hafa horft á fyrstu leikina í HM rifjast upp fyrir okkur knattspyrnufíklum að það gerist ekkert markvert fyrr en riðlakeppninni er lokið. Í riðlakeppninni fá minni spámenn að spreyta sig, en það er með mikilli vissu hægt að reikna út hvaða þjóðir komast áfram upp úr riðlunum þó að rest og rusl eigi ágæt tilþrif á köflum.
Bestu tilþrifin til þessa á hinn magnaði Maradonna sem stendur sig frábærlega á hliðarlínunni og sýnir þar mögnuð tilþrif. Það er ótrúlegt hvernig þessi litli karl nær að heilla heimsbyggðina bara með því einu að birtast á skjánum. Hann er svona eins og risastór demantur fáránleikans.
Íslenska knattspyrnan er einnig frábær skemmtun og í gær sáum við frábæran leik FH og KR sem endaði eins og búast mátti við með frekar sanngjörnum sigri FH. Sjónvarpsstöðvarnar sína frá öllum leikjum efstu deildar og það er alveg ljóst að við eigum góða skemmtun í vændum fram á haust.
Það má ekki gleyma því að það er leikið í fleiri deildum en Pepsí-deildinni. Í 1. deild eru óvætnir hlutir að gerast. Breiðholtsliðin ÍR og Leiknir eru að standa sig frábærlega og auðvitað vona ég að Breiðholtið eignist sinn fulltrúa í efstu deild á sama hátt og það væri frábært ef Fjölnir í Grafarvogi kæmist þangað aftur. Það er sorglegt hvað Akureyringum gengur illa að koma sínum liðum í efstu deild, en vonandi gerist það á næstu árum, en sennilega þurfa Þór og KA að sameinast áður en það gerist.
Draumurinn er auðvitað að stærstu hverfin í Reykjavík og stærstu sveitarfélögin eini fulltrúa i efstu deild. Þetta er að gerast smátt og smátt. En félög sem eiga sér ekkert bakland eins og Knattspyrnufélagið Valur meiga mín vegna falla niður í neðri deildir.
Svo er það auðvitað kvennaknattspyrnan ef það er hægt að kalla það knattspyrnu, en það eru fáir sem nenna að fylgjst með henni en að minu mati er hún hundleiðinleg, en auðvitað eiga stúlkur rétt á að stunda knattspyrnu sér til ánægju.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2010 | 11:26
Sjúklingarnir á netinu
Nú er að verða ár frá því ég byrjaði að fylgjast nokkuð vel með nokkrum síðum á netinu. Fastur liður er að fara á Mbl.is og síðan á M5.is og síðan á Eyjan.is. Mér fannst einnig gaman af fara á Silfrið, líta síðan yfir athugasemdir sem hefur verið hnýtt við pisla og stöku sinnum að senda smá athugasemdir sem venjulega voru hógværar, en nú er Silfrið orðið leiðinlegt og ég er nánast hættur að fylgjast með því. Með því að skanna þessar þrjár síður fær maður ágætt yfirlit yfir ákveðinn hóp aðila sem skrifar á netið.
Ef litið er yfir sviðið finnst mér þetta vera frekar sorglegt. Í mínum huga er alveg ljóst að hluti af þeim sem stöðugt eru að tjá sig á netinu er verulega sjúkt fólk. Viðhorf til þess sem er að gerast er nánast eins og það sú fólk sem þjáist af ofsóknaræði á háu stigi eða það álíti sig vara komið í þá stöðu að þekka sannleikann sem enginn annar hefur náð að fanga og hvortveggja er sjúklegt ástand.
Það koma inn aðilar sem fara mikinn í ákveðinn tíma, en detta svo út tímabundið og ég er sannfærður um að þá eru þeir í afslöppun inni á geðdeild eða öðrum meðferðarstofnunum.
Fuglakvísið sem á uppruna sinn á síðu sem heitri AMX hefur farið hamförum eftir að skýrsla Rannsóknarnefndar var birt og Davíð Oddsson settur í frekar vonda stöðu. Það getur ekki annað verið en að aðstandendur þeirra pistla þurfi að fara að fá góða hvíld á stofnun eða þar til þeir hætta að heyra þetta stöðuga suð í eyrunum.
Eitt er alveg borðleggjandi og það er að nafnkunnir fyrrverandi ritstjórar eiga ekki að halda úti bloggsíðum. Skrif þeirra á bloggsíðum er svona eins og endanleg staðfesting á að uppsögn þeirra sem ritstjórar hafi verið rétt ákvörðun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2010 | 10:12
Lox sigraði KR
Ég er ekki vanur að fagna þegar KR sigrar í kappleikjum. En í gær var mér nokkuð létt þegar ég sá að KR hafði sigrað flott lið Fram 3-2 á Laugardalvellinum. Ég mat stöðuna fyrirfram svo að Fram væri með betra lið og það væru meiri líkur en minni að þeir ættu sigurinn vísan. Þá hefði hinn ágæti þjálfari Logi Ólafsson sennileg misst jobbið, sem mér hefði þótt frekar sorglegt. KR-ingar hafa alltaf búið við það að dómarar hafa verið þeim frekar hliðhollir, sérstaklega á KR-vellinum. Sumir dómarar fara á taugum þegar þeir mæta á KR-völlinn, en það hefur ekki gerst í sumar og mitt mat er að dómarar hafi haft af KR nokkur stig.
Þeir sem þekkja til íslenskrar knattspyrnu vita það að bak við KR er gríðarlegt afl. Þegar KR gegnur vel magnast það upp og styrkjir um leið allt umhverfið. Það mæta fleiri á völlinn og það verður einhvern veginn meiri umfjöllum um íslenska knattspyrnu. Þess vegna þarf árangur þeirra að vera viðundandi, en kanski ekkert umfram það.
Í upphafi móts var nánast gegnið út frá því að KR ætti Íslandsmeistaratiltilinn vísan. Eftir að hafa horft á nokkra leiki hjá þeim hafa það sennilega verið óraunhæfar væntingar, liðið er ekki nógu kröftugt og dómararnir hafa ekki staðið við bakið á þeim. En þetta stendur sennilega allt til bóta og KR endar sennilega í eftri hluta Pepsídeildarinnar.
kv
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)